Það verður leikið í ítölsku A-deildinni um helgina en þar er spáð fínu veðri og því má ekki búast við frekari frestunum á leikjum.
Udinese og AC Milan mætast í fyrsta leik helgarinnar síðdegis á morgun. Þar má gera ráð fyrir hörkuleik því um er að ræða toppbaráttuslag.
Udinese og AC Milan mætast í fyrsta leik helgarinnar síðdegis á morgun. Þar má gera ráð fyrir hörkuleik því um er að ræða toppbaráttuslag.
Inter hefur aðeins fatast flugið upp á síðkastið en liðið hefur aðeins fengið eitt stig af níu mögulegum í síðustu þremur leikjum. Nú þarf Inter að rétta úr kútnum þegar liðið fær botnlið Novara í heimsókn á sunnudaginn.
Juventus trónir sem fyrr á toppi deildarinnar og er enn taplaust en liðið sækir Bologna heim á sunnudagskvöld.
Síðan á mánudaginn eru tveir leikir á dagskrá þar sem Napoli og Roma verða bæði í eldlínunni.
Laugardagur:
17:00 Udinese – AC Milan
19:45 Cagliari – Palermo
Sunnudagur:
14:00 Atalanta – Lecce
14:00 Catania – Genoa
14:00 Inter – Novara
14:00 Parma – Fiorentina
19:45 Bologna – Juventus
Mánudagur:
19:45 Napoli – Chievo
19:45 Siena - Roma
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |

