Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 10. febrúar 2012 08:30
Sebastían Sævarsson Meyer
Helmingslíkur á að Kompany verði með Man City um helgina
Vincent Kompany, fyrirliði Manchester City, hóf æfingar á ný í gær eftir að hafa náð að jafna sig á hnémeiðslum.

Varnarmaðurinn var ekki með liðinu gegn Fulham um síðustu helgi en gæti þó verið klár fyrir leikinn gegn Aston Villa á sunnudaginn.

Hann varð fyrir meiðslum á æfingu eftir tapleikinn gegn Everton í síðustu viku en þá hafði hann verið nýkominn úr fjögurra leikja banni eftir að hafa verið rekinn af velli gegn Manchester United í enska bikarnum.

Samkvæmt læknaliði Manchester City eru helmingslíkur eru á að hann verði með liðinu gegn Aston Villa.
Slapp
banner