Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 10. febrúar 2012 09:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Van Persie verðlaunaður – Tólf mörkum frá markametinu
Enska knattspyrnusambandið hefur verðlaunað Robin van Persie, framherja Arsenal, fyrir að hafa skorað sitt 20. deildarmark á leiktíðinni.

Hollendingurinn hefur dregið vagninn hjá Arsenal í vetur og skorað 22 mörk í ensku úrvalsdeildinni í 24. leikjum.

Hann skoraði þrennu um síðustu helgi þegar Arsenal rúllaði yfir Blackburn 7-1 en enska knattspyrnusambandið verðlaunar þann leikmann sem fyrstur nær að skora 10, 20 og 30 mörk á einu tímabili.

Van Persie hefur svo sannarlega farið á kostum en hann var einnig fyrstur til að skora 10 mörk fyrr á leiktíðinni og fékk verðlaun fyrir það og er þegar búinn að skora fleiri mörk en Dimitar Berbatov gerði á síðustu leiktíð þegar Búlgarinn varð markakóngur með 20 mörk.

Þegar 14 leikir eru eftir er van Persie 12 mörkum frá því að jafna markamet ensku úrvalsdeildarinnar en Alan Shearer og Andy Cole eru methafar með 34. mörk hvor.

Van Persie getur haldið áfram að raða inn mörkum um helgina þegar Arsenal sækir Sunderland heim á laugardaginn.
Slapp
banner
banner