,,Þegar ég var 13 eða 14 þá dýrkaði ég Aimar. Hann er frábær, ég naut þess að horfa á hann.”
Þessi orð lét besti knattspyrnumaður heims, Lionel Messi, nýlega falla um landa sinn Pablo Aimar frá Argentínu. Messi var mikill aðdáandi Aimar á unglingsárum þegar hann var upp á sitt besta.
Þessi orð lét besti knattspyrnumaður heims, Lionel Messi, nýlega falla um landa sinn Pablo Aimar frá Argentínu. Messi var mikill aðdáandi Aimar á unglingsárum þegar hann var upp á sitt besta.
Þegar Aimar heyrði að hann verið átrúnaðargoð besta knattspyrnumans heims um þessar mundir fann hann fyrir miklu stolti.
,,Messi er besti leikmaður í heimi og örugglega sögunnar. Að heyra hann hrósa mér er æðislegt. Þetta er mjög hughreystandi,” sagði Aimar.
Aimar gerði garðinn frægan með Valencia á Spáni áður en hann hélt til Real Zaragoza árið 2006. Tveimur árum síðar gekk hann síðan í raðir Benfica þar sem hann hefur verið lykilmaður síðan.
Þar að auki á þessi 32. ára gamli miðjumaður 51 landsleik að baki með Argentínu.


