Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   sun 12. febrúar 2012 12:00
Brynjar Ingi Erluson
Leiðtogar og stórstjörnur falla þegar Ramsey skorar
Hver er næstur?
Hver er næstur?
Mynd: Af netinu
Aaron Ramsey, leikmaður Arsenal á Englandi skorar ekki á hverjum degi, en þegar hann gerir það, þá getur það reynst afar hættulegt fyrir bæði leiðtoga og stórstjörnur heimsins.

Ramsey, sem er 21 árs gamall skoraði í gær er Arsenal bar sigur úr býtum gegn Sunderland á leikvangi ljóssins. Þetta var hans þriðja mark á tímabilinu, en það er eflaust sumt fólk sem vonar að þetta sé hans síðasta.

Þetta byrjaði allt saman 1. maí á síðasta tímabili þegar Ramsey skoraði gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni, en einungis degi síðar fannst Osama Bin Laden, fyrrum leiðtogi Al-Qaeda látinn í Pakistan. Hann er kenndur við fall tvíburaturnanna í New York sem átti sér stað 11. september 2001.

Það virðist þó ekki bara vera mörkin sem koma Ramsey af stað, heldur stoðsendingar líka. Hann lagði upp mark í 2-1 sigri á Köln þann 23. júlí í æfingaleik, en sama dag lést söngkonan Amy Winehouse.

Hann skoraði svo gegn Tottenham þann 2. október, reyndar var það þremur dögum seinna en þá lést Steve Jobs, frumkvöðull risa tölvuframleiðandans Apple.

19. október skoraði Ramsey aftur, þá gegn Marseille í Meistaradeildinni. Fólk beið fregna og þær komu þegar fyrrum leiðtogi Líbíu, Muammar Gaddafi var myrtur innan við sólarhring síðar.

Það var birt mynd sem sýndi þær staðreyndir að í hvert sinn sem Ramsey skoraði þá myndi einhver leiðtogi deyja. Þá stóð á myndinni að Kim Jong II, þáverandi leiðtogi Norður-Kóreu hlakkaði ekki til þegar Ramsey myndi mæta Manchester City þann 17. desember.

Ramsey skoraði vissulega ekki gegn Man City þann dag, en Kim Jong lést hinsvegar þennan sama dag og voru menn sífellt veltandi fyrir sér því hvort velski landsliðsmaðurinn stæði hreinlega á bakvið öll þessi dauðföll, að sjálfsögðu í gríni en tilviljunin var ótrúleg.

Það var svo í gær sem þetta hélt áfram. Ramsey skoraði þá fyrra mark Arsenal gegn Sunderland, en seint í gær var svo tilkynnt að söngkonan Whitney Houston væri öll, aðeins 48 ára gömul. Hún hefur verið talin ein af bestu söngkonum allra tíma, en fór illa með líf sitt vegna eiturlyfjaneyslu.

Það er því spurningin sem allir spyrja sig, hver er næst/ur í röðinni? Arsene Wenger, stjóri Arsenal þarf líklega að hugsa sig um áður en hann velur Ramsey í liðið næst.
Slapp
banner
banner