Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri PSG í Frakklandi, segir að samlandi sinn Fabio Capello hafi tekið rétta ákvörðun þegar hann sagði af sér sem þjálfari enska landsliðsins.
Capello hætti þá eftir að John Terry var sviptur fyrirliðabandinu af enska knattspyrnusambandinu, en knattspyrnusambandið svipti hann fyrirliðabandinu gegn vilja Capello.
Capello hætti þá eftir að John Terry var sviptur fyrirliðabandinu af enska knattspyrnusambandinu, en knattspyrnusambandið svipti hann fyrirliðabandinu gegn vilja Capello.
,,Ég er sammála Fabio," sagði Ancelotti.
,,Enska knattspyrnusambandið tók skyndiákvörðun án þess að ráðfæra sig við þjálfarann.
,,Vegna þessa tel ég hann hafa breytt rétt."



