Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 12. febrúar 2012 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Alan Pardew: Tapið var mér að kenna
Alan Pardew kennir sjálfum sér um tapið gegn Tottenham fyrir að velja alltof mikið af sóknarsinnuðum leikmönnum í liðið, en Newcastle tapaði leiknum 5-0.

Með sigri hefði Newcastle komið í fjórða sæti deildarinnar sem er einnig síðasta lausa sætið sem gefur þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili, en svo varð ekki.

Louis Saha og Emmanuel Adebayor tættu vörn Newcastle í sig en franski sóknarmaðurinn Saha skoraði tvö og lagði eitt upp á meðan Tógómaðurinn Adebayor lagði fjögur upp og skoraði eitt.

,,Þeir eru með mjög, mjög gott lið," sagði Alan Pardew í viðtali við ESPN eftir tapleikinn.

,,Þeir spiluðu vel á móti okkur og eiga góðan séns á að vinna deildartitilinn í ár. Þeir voru góðir og við áttum í miklum vandræðum í dag.

,,Stór partur af sökinni fellur á mig, við vorum með of mikið af sóknarsinnuðum leikmönnum á vellinum. Vörnin okkar opnaðist í gríð og erg útaf þessu, þetta var mér að kenna.

,,Við munum koma aftur til baka tvíelfdir, við höfum alltaf gert það hingað til, að ná okkur vel eftir töp. Við erum á góðum stað í deildinni og erum bara stigi á eftir Arsenal og Chelsea."

Slapp
banner
banner