Emmanuel Adebayor segir að enska landsliðið þurfi meira á Harry Redknapp að halda heldur en Tottenham þarf á honum að halda, en segir að Redknapp verði þó að klára tímabilið við stjórnvölinn hjá Tottenham.
Redknapp er talinn langlíkegasti kosturinn til að taka við stjórnartaumum enska landsliðsins af Fabio Capello eftir að Ítalinn sagði af sér á dögunum.
Redknapp er talinn langlíkegasti kosturinn til að taka við stjórnartaumum enska landsliðsins af Fabio Capello eftir að Ítalinn sagði af sér á dögunum.
,,Hann verður að vera áfram hjá félaginu út tímabilið og eftir það sjáum við til," sagði Adebayor í viðtali við ESPN.
,,Hann gefur okkur sjálfstraust, hann hefur gert mikið fyrir mig þegar ég átti erfiða kafla.
,,Enska landsliðið þarfnast hans meira en Tottenham en ég fullvissa ykkur um að hann verður hjá Tottenham út tímabilið, og eftir það sjáum við til hvað gerist."

