David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, mun halda fund á heimili sínu á Downing Street þar sem aðalumræðuefnið mun vera kynþáttafordómar í breskri knattspyrnu, en mörg rasismamál hafa komið upp sérstaklega á Englandi og í Skotlandi.
Umboðsmenn leikmanna, yfirmenn knattspyrnusambandsins og menningarmálaráðherra Bretlands munu vera viðstaddir þennan fund meðal annarra.
Umboðsmenn leikmanna, yfirmenn knattspyrnusambandsins og menningarmálaráðherra Bretlands munu vera viðstaddir þennan fund meðal annarra.
,,Skilaboðin sem ég vil gefa frá mér eru skýr: við líðum ekki kynþáttafordóma í Bretlandi," sagði Cameron.
,,Það er ekkert pláss fyrir kynþáttafordóma í nútímasamfélagi og þar sem við tökum eftir fordómum munum við sparka þeim út.
,,Knattspyrnuyfirvöld, knattspyrnufélög, knattspyrnustjórar og knattspyrnuleikmenn munu taka virkan þátt í að losa okkur við þessa tilgangslausu fordóma. Þessir aðilar virka sem fyrirmyndir unga fólksins."




