Dwight Yorke, fyrrum leikmaður Manchester United, Aston Villa, Blackburn Rovers, Birmingham City, Sydney FC og Sunderland, segist vilja taka við stjórnartaumunum hjá Sydney FC í Ástralíu.
Yorke spilaði með Sydney þegar félagið vann efstu deild þar í landi og segist vera mjög áhugasamur um að taka við þjálfarastarfinu þar.
Yorke spilaði með Sydney þegar félagið vann efstu deild þar í landi og segist vera mjög áhugasamur um að taka við þjálfarastarfinu þar.
,,Ég hef verið þar sem leikmaður og veit hversu miklu máli það skiptir að sigra," sagði Yorke.
,,Ég veit hvað þetta snýst allt um í Sydney, ég er mjög áhugsamaur."
Yorke er 40 ára gamall og er eflaust frægasti leikmaður í sögu Trinidad & Tobago, sem er land í suðurhluta Norður-Ameríku.
Yorke tók nýverið við starfi sem aðstoðarþjálfari hjá varaliði Manchester United en nú hafa borist fregnir af því að Vitezslav Lavicka, stjóri Sydney, mun skilja við félagið að tímabilinu loknu.




