Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   sun 12. febrúar 2012 11:30
Ívan Guðjón Baldursson
Villas-Boas: Einn versti leikur tímabilsins
David Moyes og Andre Villas-Boas voru teknir í viðtal eftir 2-0 sigur Everton á Chelsea í gær og voru augljóslega í misgóðu skapi.

David Moyes segir að lið sitt hafi spilað vel en hann segist vita að það geti spilað enn betur á meðan Villas-Boas taldi þetta vera einn versta leik Chelsea á tímabilinu.

,,Þetta voru góð úrslit fyrir okkur og við spiluðum vel mestan part leiksins," sagði Moyes.

,,Mér finnst að við getum spilað mun betur. Þegar við öðlumst meira sjálfstraust og förum að vinna nokkra leiki í röð þá mun allt smella saman hjá okkur.

,,Við vorum heppnir að missa forskotið ekki niður í fyrri hálfleik en í síðari hálfleik var varnarleikur liðsins frábær og ég var sjaldan hræddur um að Chelsea gæti komist í marktækifæri."


Villas-Boas var ósáttur við spilamennsku sinna manna og telur þetta vera lélegustu frammistöðu liðsins í deildinni hingað til.

,,Ég held að þetta hafi verið einn versti leikur tímabilsins fyrir okkur. Þegar ég segi versti þá meina ég það," sagði Villas-Boas.

,,Everton voru góðir í dag, ég sá lítið sem ekkert jákvætt við okkar leik."
Slapp
banner
banner
banner