Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   sun 12. febrúar 2012 12:42
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: ESPN 
Barnes: Suarez þurfti ekki að taka í hönd Evra
John Barnes, fyrrum leikmaður Liverpool og enska landsliðsins segir að ef Luis Suarez hefði tekið í höndina á Patrice Evra í gær, þá hefði það ekki verið ekta.

Manchester United sigraði Liverpool í nágrannaslagnum í gær með tveimur mörkum gegn einu. Wayne Rooney kom United yfir með tveimur mörkum áður en Suarez minnkaði muninn, en eitt handaband og fögnuður Evra skyggði á leikinn sjálfan.

Suarez og Evra tókust ekki í hendur fyrir leik. Til eru nokkrar upptökur af handabandinu, en þegar bein útsending var í gangi virðist vera sem svo að Suarez neitar að taka í hönd Evra, á var birt myndband þar sem dæminu var snúið við, en dæmi hver fyrir sig.

Barnes lék með Liverpool til fjölda ára, en hann lenti meðal annars í rasisma er hann lék með liðinu og var kastað banana í átt að honum á sínum tíma. Hann segir þó að ef Suarez hefði tekið i hönd Evra þá hefði það ekki verið ekta.

,,Ég er að segja ykkur það að það er ekki verið að gera mikið mál af Suarez eða Terry málinu í öðrum löndum. Enska knattspyrnan mun ekki skaðast við þettta," sagði Barnes.

,,Ég gerði ráð fyrir því að það væri búið að ákveða að það væri fram handaband fyrir leikinn og að allir myndu takast í hendur. Þegar ég sá hvað gerðist þá fékk það mig til að hugsa hvort Suarez hefði hætt við á síðustu stundu."

,,Þetta hlýtur að hafa verið rætt hjá Liverpool. Ef Suarez sagðist ekki ætla að taka í hönd hans, þá hefur hann allan rétt á því ef hann vill ekki gera það, en þá hefði Liverpool átt að koma í veg fyrir að þessi staða kæmi upp og koma jafnframt í veg fyrir að þeir myndu hittast fyrir leik,"
sagði hann að lokum.
Slapp
banner
banner
banner