Heimild: Soccerway
Rússneska liðið Anzhi Makhachkala vill ráða Fabio Capello sem þjálfara liðsins og fjárfesta í lið í hollenska miðjumanninn Wesley Sneijder sem leikur hjá Inter, samkvæmt ítalska miðlinum Tuttosport.
Capello sagði sig lausan úr starfi sínu sem þjálfari enska landsliðsins á dögunum, en Suleyman Kerimov, forseti Anzhi vill ólmur fá ítalska þjálfarann í sínar herbúðir og kemur liðið til með að bjóða honum rosalegan samning.
Yuri Krasnozhan var ráðinn þjálfari Anzhi í desember og gerði hann fimm ára samning við félagið, en Kerimov vill henda honum af skipinu og fá Capello í hans stað, sem hefur þjálfað Juventus, Real Madrid og AC Milan einnig á ferlinum.
Rússneska liðið vill þá kaupa hollenska miðjumanninn Wesley Sneijder hjá Inter Milan, en hann hefur verið orðaður lengi við Manchester United. Hann hefur átt erfitt uppdráttar á þessu tímabili og hefur Claudio Ranieri, þjálfari Inter átt í vandræðum með að finna réttu stöðu hans á vellinum.



