Heimild: Fox Sports
Roberto Mancini, stjóri Manchester City á Englandi segir að argentíski framherjinn Carlos Tevez gæti hjálpað þeim síðustu þrjá mánuðina sem eftir eru af keppnistímabilinu.
Tevez hefur ekki spilað síðan í september, þegar hann neitaði að koma inná í leik Man City og FC Bayern í Meistaradeild Evrópu.
Hann hefur verið að hafa það náðugt í heimalandi sínu undanfarna tvo mánuði og þá reyndi leikmaðurinn að komast frá félaginu í félagaskiptiglugganum í janúar, en það varð ekkert úr því.
Eftir marga mánuði í ósætti þá vill Mancini sitja fund með Tevez og ræða það hvort leikmaðurinn sé reiðubúinn í að snúa aftur og hjálpa liðinu í titilbaráttunni.
,,Allir vita það að Tevez er frábær knattspyrnumaður og það hefði líklega verið betra fyrir okkur ef hann hefði verið hérna með okkur," sagði Mancini.
,,Carlos hefur burðina til þess að breyta leikjum og ef hann kemur í næstu viku þá gæti hann hjálpað okkur síðustu þrjá mánuðina. Ég veit ekki hvort hann er í góðu formi eða ekki, en ég held að hann sé það ekki, enda ekki spilað í fjóra mánuði. Hann verður þó fljótur að ná fyrra formi."
,,Hann veit hvernig staðan er, en ef hann kemur aftur þá munum við ræða saman. Ég meina af hverju ekki? Það er ekkert vandamál mín megin alla vega," sagði Mancini að lokum.



