Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 12. febrúar 2012 14:36
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Soccerway 
Wilshere gæti snúið aftur í mars
Jack Wilshere, leikmaður Arsenal á Englandi gæti snúið aftur úr meiðslum sínum í mars samkvæmd fregnum frá Englandi.

Wilshere, sem er 20 ára gamall hefur verið óheppinn með meiðsli á þessu tímabili, en hann meiddist í leik gegn New York Red Bulls síðasta sumar og hefur verið frá síðan.

Leikmaðurinn hefur þó gengið vel í endurhæfingunni og gæti vel farið svo að hann mæti aftur á völlinn í mars, ef jákvæðar fréttir berast úr skönnunum.

Wilshere gæti þá barist um sæti í liðið enska landsliðsins sem fer á Ólympíuleikanna og einnig landsliðið sem fer á Evrópumótið í Úkraínu, en hann á fimm leiki að baki fyrir England.
Slapp
banner