Rio Ferdinand, varnarmaður Manchester United á Englandi segir að Patrice Evra hafi gengið of langt með fagni sínu eftir leik liðsins gegn Liverpool í gær.
Það þarf varla að kynna atvikið sem átti sér stað í gær, en handabandið sem varð ekki milli Luis Suarez og Patrice Evra skyggði á 2-1 sigur Manchester United, þar sem Wayne Rooney skoraði tvö mörk áður en Suarez sjálfur minnkaði muninn.
Ferdinand lét hörð orð falla í garð Suarez eftir leikinn og sagðist hafa misst alla virðingu gagnvart leikmanninum, en þá segir hann að liðsfélagi sinn, Evra hafi gengið alltof langt í fagnaðarlátunum.
Evra fagnaði þá vel og innilega eftir leikinn, beint fyrir framan Suarez sem varð til þess að Phil Dowd, dómari leiksins þurfti að koma Evra frá áður en leikmenn Liverpool hópuðust að honum.
,,Ég er viss um að Patrice Evra komi til með að finnast fagnðarlæti sín eftir leikinn hafa verið of mikil. Tilfinningar réðu greinilega ferðinni þarna," sagði Ferdinand á samskipstavefnum Twitter.




