Heimild: Sky
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United hlakkar til þess að sjá danska leikmanninn Chrstian Eriksen hjá Ajax spila er liðin mætast í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í næstu viku.
Eriksen, sem er 19 ára gamall miðjumaður hefur verið frábær með Ajax undanfarin tvö ár þar sem hann hefur stimplað sig sem einn af efnilegustu miðjumönnum heims en þá er hann einnig búinn að koma sér vel fyrir í danska landsliðinu þar sem hann er lykilmaður.
Hann hefur verið sterklega orðaður við stærstu lið Evrópu, þar á meðal Man Utd, en Ferguson fær að sjá leikmanninn spila er liðin mætast á fimmtudag í fyrri viðureign liðanna sem fer fram á Old Trafford.
,,Athyglin hefur beinst að honum í liði Ajax og það hafa allir verið að fylgjast með honum, við munum sjá hvernig hann er í leikjunum," sagði Ferguson.


