Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 12. febrúar 2012 16:00
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: AP 
Hertha Berlin rekur þjálfarann eftir fimm leiki
Þýska úrvalsdeildarliðið Hertha Berlin hefur rekið þjálfarann Michael Skibbe, en hann hefur einungis stýrt liðinu fimm sinnum.

Félagið staðfesti í dag að Skibbe og aðstoðarmaður hans, Edwin Boekamp hefðu verið látnir taka poka sinn eftir tæplega tvo mánuði í starfi, en Skibbe stýrði liðinu í fimm leikjum og tapaði þeim öllum.

Skibbe var ráðinn í desember eftir að félagið ákvað að reka Markus Babbel úr starfi, en honum lenti saman við framkvæmdarstjóra Berlínarliðsins. Mælirinn var fullur hjá Herthu Berlin þegar liðið tapaði 5-0 fyrir Stuttgart í gær og ákvað því að láta þjálfarann fara.

Liðið situr í 15. sæti deildarinnar, tveimur stigum frá fallsæti en liðið komst upp í efstu deild fyrir tímabilið. Næsti leikur liðsins er gegn toppliði Borussia Dortmund næsta laugardag, en óvíst er hver kemur til með að taka við liðinu.
Slapp