Heimild: Heimasíða Liverpool
Luis Suarez, framherji Liverpool á Englandi hefur beðist afsökunar á að hafa ekki tekið í hönd Patrice Evra hjá Manchester United fyrir leik liðanna í gær.
Manchester United vann leikinn með tveimur mörkum gegn einu þar sem Wayne Rooney kom United yfir með tveimur mörkum áður en Luis Suarez minnkaði muninn, en það var hið fræga handaband sem varð ekki, sem skyggði á úrslit leiksins.
Suarez neitaði þá að taka í hönd Evra fyrir leikinn, en úr því varð dramatík sem varð síðar til þess að Evra fagnaði vel og innilega fyrir framan leikmanninn að leik loknum. Mikið var rýnt í myndbönd eftir leikinn hvor tók ekki í höndina á hverjum, en nú hefur framherjinn viðurkennt mistök sín og beðist afsökunar.
,,Ég talaði við þjálfarann eftir leikinn á Old Trafford og áttað mig á því að ég fór rangt að hlutunum," sagði Suarez.
,,Ég hef ekki bara brugðist honum, heldur líka félaginu og þýðingu þess. Ég biðst afsökunar og ég sé eftir því sem gerðist."
,,Ég hefði átt að taka í höndina á Patrice Evra fyrir leikinn og ég vil biðjast afsökunar á framferði mínu. Núna vil ég grafa þetta mál og einbeita mér að því að spila fótbolta," sagði hann að lokum.
Suarez var í desember dæmdur í átta leikja bann fyrir að vera með kynþáttaníð í garð Evra í leik liðanna í október, en leikurinn í gær var í fyrsta skiptið sem leikmennirnir voru að mætast eftir atvikið.

