Heimild: Heimasíða Liverpool
Ian Ayre, framkvæmdastjóri Liverpool segir að Luis Suarez, framherji liðsins hafi staðið á röngu með því að taka ekki í höndina á Patrice Evra fyrir leik liðsins gegn Manchester United í gær.
Þrátt fyrir að Man Utd hafi náð að landa 2-1 sigri á Old Trafford í gær þá var skyggt á úrslit leiksins með atviki sem átti sér stað fyrir viðureignina. Suarez neitaði þá að taka í hönd Evra fyrir leikinn sem skapaði mikla dramatík.
Evra fagnaði svo vel og innilega eftir leikinn og hljóp í áttina að Suarez þar sem hann lyfti upp höndum og hélt fögnuðinum áfram. Phil Dowd, dómari leiksins var fljótur á staðinn til að koma Evra burt og hópuðust einnig leikmenn Liverpool að franska varnarmanninum.
Suarez hefur beðist afsökunar á framferði sínu, en Ayre var langt frá því með að vera sáttur við ákvörðun úrúgúvæska framherjans.
,,Við vorum fyrir gríðarlega miklum vonbrigðum þegar að Luis Suarez ákvað að taka ekki í hönd Patrice Evra. Hann var búinn að segja við okkur fyrir leikinn að hann myndi taka í hönd hans, en ákvað svo að gera það ekki," sagði Ayre við heimasíðu Liverpool.
,,Hann hefur ekki bara brugðist sjálfum sér heldur Kenny, leikmönnunum og félaginu líka. Það hefur öllum verið gert ljóst að þessi hegðun Suarez er ekki ásættanleg."
,,Suarez hefur núna beðist velvirðingar á gjörðum sínum, sem var það rétta í stöðunni. Við höfum öll okkar hlutverki að gegna með því að koma vel fram og vonandi skilur hann það núna við hverju við búumst af fólki sem spilar fyrir hönd Liverpool Football Club," sagði Ayre að lokum.




