Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 12. febrúar 2012 15:40
Brynjar Ingi Erluson
England: Odemwingie með þrennu í stórsigri á Wolves
Wolves 1 - 5 West Brom
0-1 Peter Odemwingie ('34 )
1-1 Steven Fletcher ('45 )
1-2 Jonas Olsson ('64 )
1-3 Peter Odemwingie ('77 )
1-4 Keith Andrews ('85 )
1-5 Peter Odemwingie ('88 )

WBA gerði sér góða ferð á Molineux leikvanginn í dag þegar liðið sigrað heimamenn í Wolves með fimm mörkum gegn einu.

Nígeríski framherjinn Peter Odemwingie kom gestunum yfir á 34. mínútu leiksins með skot rétt fyrir utan teig, en boltinn hafði viðkomu af David Edwards og í netið. Steven Fletcher jafnaði metin fyrir Wolves rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og stóðu leikar þannig í hálfleik.

Síðari hálfleikur var ekki heppilegur fyrir heimamenn í Wolves, en sænska varnartröllið Jonas Olsson kom gestunum yfir á 64. mínútu með mark eftir hornspyrnu. Odemwingie bætti við þriðja mark WBA þrettán mínútum síðar af stuttu færi.

Keith Andrews skoraði fjórða mark WBA á 85. mínútu, en hann var að spila sinn fyrsta leik fyrir félagið. Odemwingie fullkomnaði síðan þrennuna og rak naglann í kistuna með fimmta marki WBA á 88. mínútu leiksins.

Lokatölur því 1-5, en WBA er nú í 14. sæti deildarinnar með 29 stig eftir 25 umferðir á meðan Wolves er í fallbaráttunni í 18. sæti með 21 stig. Eggert Gunnþór Jónsson sat allan tímann á bekknum hjá Úlfunum í dag.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner