Heimild: Heimasíða Liverpool
Kenny Dalglish, knattspyrnustjóri Liverpool á Englandi segir það rétta ákvörðun hjá Luis Suarez framherja liðsins að biðjast afsökunar á hegðun sinni.
Suarez neitaði að taka í hönd Patrice Evra, fyrirliða Manchester United í gær, sem skapaði mikla dramatík fyrir leikinn. Þetta var fyrsti leikur Suarez í byrjunarliði síðan hann tók út átta leikja bann sitt fyrir kynþáttaníð í garð Evra.
Búist var við fyrir leikinn að Suarez myndi taka í hönd Evra og hafði það verið samþykkt, en leikmaðurinn ákvað á síðustu stundu að gera það ekki. Franski varnarmaðurinn fagnaði svo vel í leikslok fyrir framan Suarez er United hafði landað 2-1 sigri, en meira var fjallað um handabandið en leikinn sjálfan.
Dalglish mætti í viðtal eftir leikinn og sagðist ekki hafa séð atvikið, en það kom honum á óvart að úrúgvæski framherjinn hafi ekki tekið í hönd Evra.
,,Ian Ayre, framkvæmdarstjóri Liverpool hefur gert öllum ljóst hvað félaginu fannst um þetta og það var rétt hjá Suarez að biðjast afsökunar á því sem gerðist á Old Trafford," sagði Dalglish.
,,Ef ég á að segja eins og er þá var ég undrandi þegar ég komst að því að hann hafði ekki tekið í hönd Evra fyrir leikinn, sérstaklega í ljósi þess að búið var að ræða við Suarez vikuna áður og hann hafði samþykkt að taka í hönd hans."
,,En eins og Ayre sagði fyrr í dag þá eru allir hjá knattspyrnufélaginu Liverpool sem hafa ábyrgð að gegna og það sama á við um mig. Þegar ég fór í sjónvarpsviðtal í gær þá hafði ég ekki séð hvað gerðist. En ég hagaði mér ekki eins og stjóra Liverpool er sæmandi í þessu viðtali og vil biðjast afsökunar á því.," sagði hann að lokum.




