Þrír leikir fóru fram í Seríu A á Ítalíu í dag, en stórlið Inter Milan tapaði fyrir nýliðunum í Novara.
Það voru ansi óvænt úrslit í leik Inter Milan og Novara, en gestirnir höfðu betur með einu marki gegn engu. Það var ítalski framherjinn Andrea Caracciolo sem skoraði sigurmarkið á 56. mínútu leiksins.
Catania sigraði þá Genoa nokkuð auðveldlega með fjórum mörkum gegn engu og þá gerður Atalanta og Lecce markalaust jafntefli. Tveimur leikjum var þá frestað en Bologna átti að fá Juventus í heimsókn og þá átti Fiorentina að mæta Parma.
Úrslit og markaskorarar úr leikjum dagsins:
Catania 4 - 0 Genoa
1-0 Francesco Lodi ('8 , víti)
2-0 Pablo Barrientos ('49 )
3-0 Pablo Barrientos ('52 )
4-0 Gonzalo Bergessio ('62 )
Atalanta 0 - 0 Lecce
Inter 0 - 1 Novara
0-1 Andrea Caracciolo ('56 )
Rautt spjald:Ivan Radovanovic, Novara ('80)
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |




