Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mán 13. febrúar 2012 05:55
Sebastían Sævarsson Meyer
Ítalía - Leikir dagsins
Tveir leikir eru á dagskrá í kvöld í ítölsku A-deildinni en þá mætast Napoli og Chievo og Siena fær Roma í heimsókn.

Napoli hefur ekki átt góðu gengi að fagna undanfarið en í síðustu fimm leikjum liðsins hefur það fengið fjögur stig af 15 mögulegum. Til að heltast ekki úr lestinni í baráttunni um evrópusæti þarf Napoli á sigri að halda í kvöld gegn Chievo.

Roma er einnig í mikilli baráttu um sæti í Evrópudeildinni á næstu leiktíð en liðið er einu sæti fyrir neðan evrópusæti. Siena þarf hins vegar á stigum að halda í fallbaráttunni þegar liðin mætast í kvöld.

Í kvöld:
19:45 Napoli – Chievo
19:45 Siena – Roma
Slapp
banner
banner