Mark Schwarzer segist vera lifa drauminn með Fulham og vill að minnsta kosti spila í tvö ár til viðbótar.
Þessi 39 ára gamli Ástrali hefur varið mark Fulham síðan 2008 þegar hann kom frá Middlesbrough.
Þessi 39 ára gamli Ástrali hefur varið mark Fulham síðan 2008 þegar hann kom frá Middlesbrough.
Hann framlengdi samning sinn við félagið í síðasta mánuði sem gildir út næta tímabil en sá ætlar sér ekki að leggja hanskana á hilluna á næsta ári þar sem markmið hans er að spila með Ástralíu á HM 2014, en þá verður hann orðinn 41. árs gamall.
,,Þetta er frábært, ég er að lifa drauminn. Ég er að spila fótbolta á hæsta stigi og ég er næstum fertugur,” sagði Schwarzer.
,,Ég er enn að, því ég elska að spila fótbolta. Svo lengi sem þú elskar að spila og þú ert enn nógu góður til að spila á þessu stigi þá viltu halda áfram.”
,,Ég er enn spenntur fyrir að spila með Ástralíu á HM 2014. Það er mitt meginmarkmið sem ég er að vinna að.”

