Aston Villa 0 - 1 Manchester City
0-1 Joleon Lescott ('63 )
Manchester City lagði Aston Villa af velli með einu marki gegn engu í lokaleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.
0-1 Joleon Lescott ('63 )
Manchester City lagði Aston Villa af velli með einu marki gegn engu í lokaleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.
Í gær komst Manchester United á toppinn með sigri gegn Liverpool og setti þar með pressu á granna sína í City sem stóðust þó prófið og endurheimtu toppsætið.
Joleon Lescott reyndist hetja City þegar hann skoraði eina mark leiksins eftir rúman klukkutíma. Eftir hornspyrnu barst boltinn á Gareth Barry sem lagði hann fyrir markið á Lescott sem var einn á auðum sjó í teignum og átti ekki í vandræðum með að skora sigurmarkið.
Með sigrinum er Manchester City með tveggja stiga forystu á toppi deildarinnar á ný, nú með 60 stig. Aston Villa er aftur á móti í 15. sæti.
Aston Villa (4-3-3): Given - Hutton, Dunne (Baker '90), Collins, Cuellar - Albrighton (Ireland '77), Petrov, Gardner - Bent, Keane, Heskey (N'Zogbia '69)
Manchester City (4-2-3-1): Hart - Zabaleta, Kombany, Lescott, Kolarov - Barry, de Jong - Johnson (Nasri '84), Silva (Richards '90), Milner - Aguero (Dzeko '89)



