Útsendingarsíminn er 517-0977
Boltinn verður á X-inu FM 97,7 í dag milli 11 og 12. Fótbolti.net hefur umsjón með þættinum í dag.
Kynþáttafordómar í fótboltanum verða til umræðu ásamt því að síminn verður opinn fyrir hlustendur sem hafa skoðun á atviki helgarinnar þegar Luis Suarez neitaði að taka í höndina á Patrice Evra.
Kynþáttafordómar í fótboltanum verða til umræðu ásamt því að síminn verður opinn fyrir hlustendur sem hafa skoðun á atviki helgarinnar þegar Luis Suarez neitaði að taka í höndina á Patrice Evra.
Síminn í þættinum er 517-0977.
Gestur þáttarins er Pape Mamadou Faye, leikmaður Grindavíkur, en víða verður komið við í spjalli við hann.
Umsjónarmenn þáttarins eru Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson. Hægt er að finna þá á Twitter undir @elvargeir og @benediktboas.
Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna



