Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 12. febrúar 2012 18:25
Sebastían Sævarsson Meyer
Þýskaland: Guerrero hetja Hamburger - Markalaust í fallbaráttuslag
Tveir leikir fóru fram í dag í þýsku úrvalsdeildinni en þá mættust grannarnir Augsburg og Nürnberg áður en Köln fékk Hamburger í heimsókn í lokaleik helgarinnar.

Augsburg og Nürnberg skildu með markalausu jafntefli í tíðindalitlum leik en bæði lið eru í neðarlega í deildinni í mikilli fallbaráttu.

Þá hafði hafði Hamburger betur gegn Kökn með einu marki gegn engu þar sem Paolo Guerrero skoraði sigurmark Hamburger þegar tvær mínútur voru til leiksloka.

Hamburger fór þar með upp í 10. sæti deildarinnar en Köln er í 12. sæti.

Köln 0 - 1 Hamburger
0-1 Paolo Guerrero ('88)

Augsburg 0 - 0 Nürnberg

Slapp
banner