Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 12. febrúar 2012 19:02
Sebastían Sævarsson Meyer
Gareth Barry: Erfitt að spila á útivelli
Gareth Barry, leikmaður Manchester City, var ánægður með sigurinn gegn Aston Villa en hann lagði upp sigurmarkið í leiknum.

Man City hafði betur 1-0 og endurheimti þar með efsta sæti deildarinnar en það var varnarmaðurinn Joleon Lescott sem skaut liðinu aftur á toppinn.

Leikmenn City áttu erfitt með að brjóta ísinn þar til Lescott skoraði sigurmarkið eftir hornspyrnu eftir rúman klukkutíma leik en eftir það var sigurinn þó aldrei í hættu.

,,Hver leikur á útivelli í ensku úrvalsdeildinni er erfiður svo það er frábært að hafa náð að landa þremur stigum hér í dag,” sagði Gareth Barry eftir leikinn.

,,Manchester United hefur unnið marga titla undanfarið en við erum lið með mikla reynslu, við höfum leikmenn sem hafa unnið titla í öðrum löndum.”

,,Það er eitthvað sem við verðum að nýta okkur í titilbaráttunni."
Slapp
banner