Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 12. febrúar 2012 19:43
Sebastían Sævarsson Meyer
Vermaelen þreyttur á að spila sem vinstri bakvörður
Thomas Vermaelen, varnarmaður Arsenal, er þreyttur á að spila sem vinstri bakvörður og segist vilja spila aftur í stöðu miðvarðar.

Þessi 26 ára gamli Belgi hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Arsenal en hefur þurft að spila sem vinstri bakvörður þar sem liðið á í meiðslavandamálum að stríða.

Hann segist ekki geta sýnt sitt besta í þeirri stöðu og er oft pirraður eftir leiki en spilar þó þar sem honum er sagt til að hjálpa liðinu.

,,Ég er orðinn þreyttur á að spila sem vinstri bakvörður. Ég er ekki góður á þeirri stöðu, ég vil ná mínum hæstu hæðum og ég næ því ekki á vinstri.”

,,Ég spila þarna til að hjálpa liðinu en það veitir mér enga ánægju þar sem ég næ ekki mínu besta fram.”

,,Ég sinni vinnunni minni en mér líður sjaldan vel eftir leiki. Ef liðið vinnur þá er ég ánægður, en þetta heldur áfram að vera pirrandi.”
Slapp