Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   sun 12. febrúar 2012 20:00
Daníel Freyr Jónsson
Mick McCarthy biður stuðningsmenn afsökunnar
Mick McCarthy, knattspyrnustjóri Wolves, bað stuðningsmenn liðsins afsökunar á frammistöðu liðsins eftir 5-1 tap á heimavelli gegn WBA á heimavelli í dag.

Þetta var mikilvægur slagur í fallbaráttunni og þurfa leikmenn Wolves svo sannarlega að taka sig saman í andlitinu ef ekki á illa að fara. Liðið er eftir tapið í 18. sæti með 21 stig, jafnmörg og QPR og Blackburn sem eru fyrir ofan með betri markatölu.

„Það er of vægt að segja að þessi dagur hafi valdið vonbrigðum,“ sagði McCarthy eftir leikinn í dag.

„Þetta varð á endanum hræðilegt síðdegi, frammistaða okkar var gjörsamlega til skammar. Við áttum erfiðan fyrri hálfleik en komust aftur inn í leikinn. Við hófum seinni hálfleik ágætlega en tókst ekki að verjast tveimur föstum leikatriðum, og þá vorum við 3-1 undir. Eftir það var okkur refsað útum allt.

„Þetta var hræðileg frammistaða. Ég geri það ekki oft, en ég ætla að biðjast afsökunar til allra stuðningsmanna okkar sem komu hingað og horfðu á leikinn í dag."

Slapp
banner