Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mán 13. febrúar 2012 06:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Mancini: Hart getur komist í hóp þeirra bestu
Joe Hart, markvörður Manchester City, á enn margt ólært til að verða besti markvörður heims að sögn Roberto Mancini, knattspyrnustjóra.

Man City rétt marði Aston Villa í gær með einu marki gegn engu en Hart kom liðinu til bjargar með glæsilegri markvörslu gegn Darren Bent seint í leiknum.

Enski landsliðsmarkverðinum var vel hrósað eftir leikinn en Mancini segir þó hann eiga enn langt í land áður en hægt sé að telja hann sem besta markvörð heims.

,,Ég held hann sé ekki besti markmaður heims því hann er ungur og það eru aðrir markmenn sem hafa meiri reynslu,” sagði Mancini.

,,Ég tel hann vera með þeim betri en hann þarf að bæta sig því hann er ungur. Hann á mörg ár eftir, en hann getur komist í hóp þeirra bestu.”
Slapp
banner