,,Við höfum verið á toppnum síðan í ágúst því við eigum að skilið,” sagði Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Manchester City, eftir leikinn gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni fyrr í dag.
Manchester City hafði betur með einu marki gegn engu þar sem varnarmaðurinn Joleon Lescott tryggði City sigur þegar hann skoraði eina mark leiksins á 63. mínútu.
Manchester City hafði betur með einu marki gegn engu þar sem varnarmaðurinn Joleon Lescott tryggði City sigur þegar hann skoraði eina mark leiksins á 63. mínútu.
Með sigrinum endurheimti liðið efsta sæti deildarinnar og var Mancini mjög ánægður með frammistöðu sinna manna í leiknum þó svo sigurinn hafi verið allt annað en sannfærandi.
,,Þetta var erfiður leikur, við vissum það fyrir leikinn en strákarnir spiluðu frábæran fótbolta. Við fengum mörg færi til að skora í fyrri- og seinni hálfleik og það var erfitt að sækja á lið sem reynir að verjast með öllum mönnum svo við urðum að vera þolinmóðir,” hélt Mancini áfram.
,,Joleon Lescott átti frábæran leik, en hann var ekki sá eini sem spilaði vel heldur allt liðið og sérstaklega í fyrri hálfleik en þar vantaði okkur bara mark sem við síðan gerðum í seinni hálfleik.”
