Mist Elíasdóttir markmaður hefur skrifað undir tveggja ára samning við Breiðablik en þett akom fram í fréttatilkynningu frá félaginu í gær.
Mist hefur frá árinu 2009 stundað nám í USA og spilað með Florida Institute of Technology eða FIT panthers.
Áður en Mist fór erlendis í nám spilaði hún yfir 40 leiki í efstu deild með FH, Keflavík og ÍR.
Mist á að baki leiki með U17 og U19 landsliðum Íslands.
Hún er markvörður en hefur þó einnig einhverja reynslu sem útileikmaður einnig þegar hún lék með ÍR.


