Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   sun 12. febrúar 2012 22:34
Sebastían Sævarsson Meyer
Afríkukeppnin: Sambía Afríkumeistari í fyrsta sinn
Sambía 0 - 0 Fílabeinsströndin (8-7 eftir vítaspyrnukeppni)

Sambía varð í kvöld Afríkumeistari með því að leggja Fílabeinsströndina af velli í úrslitaleiknum eftir æsispennandi vítaspyrnukeppni.

Staðan var markalaus eftir venjulegan leiktíma og því þurfti að knýja fram framlengingu. Þrátt fyrir ágætis tilraunir hjá báðum liðum var ekkert skorað í framlengingunni þannig að grípa þurfti til vítaspyrnukeppni til að ráða úr úrslitum.

Vítaspyrnukeppnin var hnífjöfn og spennandi en bæði lið skoruðu úr fyrstu sjö spyrnum sínum. Eftir þar fóru markmennirnir loks að segja til sín en Gervinho og Kolo Toure misnotuðu tvær vítaspyrnur þegar komið var í bráðabana svo Stopilla Sunzu tryggði Sambíu sigur að lokum.

Sambía fór taplaust í gegnum keppnina en þetta er í fyrsta sinn sem Sambía verður Afríkumeistari.

Vítaspyrnukeppnin:
Ismael Tiote skorar (Fílabeinsströndin) 0-1
Chris Katongo skorar (Sambia) 1-1
Wilfried Bony skorar (Fílabeinsströndin) 1-2
Emmanuel Mayuka skorar (Sambia) 2-2
Souleymane Bamba skorar (Fílabeinsströndin) 2-3
Isaac Chansa skorar (Sambia) 3-3
Max-Alain Gradel skorar (Fílabeinsströndin) 3-4
Felix Katongo skorar (Sambia) 4-4
Didier Drogba skorar (Fílabeinsströndin) 4-5
Kennedy Mweene skorar (Sambia) 5-5
Siaka Tiene skorar (Fílabeinsströndin) 5-6
Nathan Sinkala skorar (Sambia) 6-6
Didier Ya Konan skorar (Fílabeinsströndin) 6-7
Chisamba Lungu skorar (Sambia) 7-7
Kolo Toure klúðrar (Fílabeinsströndin) 7-7
Rainford Kalaba klúðrar (Sambia) 7-7
Gervinho klúðrar (Fílabeinsströndin) 7-7
Stopilla Sunzu skorar (Sambia) 8-7
Slapp
banner
banner
banner