Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 12. febrúar 2012 22:43
Sebastían Sævarsson Meyer
Spánn: Þrenna hjá Ronaldo er Real Madrid jók forskotið í tíu stig
Real Madrid 4 - 2 Levante
0-1 Gustavo Cabral ('5 )
1-1 Cristiano Ronaldo ('45 , víti)
2-1 Cristiano Ronaldo ('50 )
3-1 Cristiano Ronaldo ('57 )
3-2 Arouna Kone ('63 )
4-2 Karim Benzema ('66 )
Rautt spjald:Vicente Iborra, Levante ('44)

Real Madrid styrkti stöðu sína á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld þegar liðið bar sigurorð af Levante 4-2 á Santiago Bernabeu.

Real Madrid lenti þó undir snemma leiks þegar Gustavo Cabral kom gestunum yfir þegar fimm mínútur voru liðnar af leiknum.

Þá tók Cristiano Ronaldo til sinna ráða og jafnaði leikinn rétt fyrir leikhlé úr vítaspyrnu og bætti síðan við tveimur mörkum í byrjun síðari hálfleiks og kom Real Madrid í 3-1.

Arouna Kone minnkaði síðan muninn fyrir Levante á 63. mínútu leiksins en Karim Benzema innsiglaði sigur Real Madrid aðeins þremur mínútum síðar.

Þar með jók Real Madrid forskot sitt á toppi deildarinnar í tíu stig á Barcelona.
Slapp
banner
banner
banner