Ragnar Bragi Sveinsson byrjar verl með unglingaliði Kaiserslautern í Þýskalandi og er þegar farinn að skora mörk.
Hann lék með liðinu gegn Zweibrücken sem er í fimmtu efstu deild i þýskalandi og leiknum lauk með 1-1 jafntefli. Ragnar Bragi skoraði mark liðsins.
Hann lék svo með liðinu gegn Wien Wiesenbaden í leik sem endaði með 4-1 sigri Kaiserlautern.
Ragnar skoraði eitt mark og lagði upp tvö auk þess að fiska eina vitaspyrnu.



