Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   mán 13. febrúar 2012 07:30
Sebastían Sævarsson Meyer
Saha: Eins og að lifa drauminn hjá ungum dreng
Louis Saha var hæstánægður að hafa skorað sín fyrstu mörk í treyju Tottenham um helgina í fyrsta byrjunarliðsleiknum sínum með liðinu.

Tottenham kom mörgum á óvart þegar það samdi við framherjann út leiktíðina á lokadegi félagaskiptagluggans í janúar.

Þessi 33. ára gamli Frakki fékk tækifæri í byrjunarliðinu um helgina gegn Newcastle og sýndi frábæra frammistöðu þegar hann skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í 5-0 sigri.

,,Þetta var frábær, frábær tilfinning,” sagði Saha.

,,Ég er ekki það ungur, en þetta er eins og að lifa drauminn hjá ungum dreng. Að vera í byrjunarliðinu í fyrsta sinn og skora á heimavelli, þetta er stórfenglegt.”
Slapp
banner