Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 22. febrúar 2012 06:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Bold.dk 
Nikolaj Pedersen til FC Frederica (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Nikolaj Hagelskjær Pedersen, sem lék með Stjörnunni síðastliðið sumar, hefur gengið til liðs við FC Frederica í heimalandi sínu Danmörku.

Nikolaj var á dögunum á reynslu hjá Selfyssingum en nú er ljóst að hann mun ekki leika á Íslandi í sumar.

Þessi 21 árs gamli leikmaður fékk ekki atvinnumannasamning hjá Frederica þar sem 22 leikmenn eru á samning hjá félaginu nú þegar.

Nikolaj mun spila með Frederica síðari hluta tímabils í dönsku fyrstu deildinni og í kjölfarið gæti hann fengið lengri og betri samning hjá félaginu.

Síðastliðið sumar lék Nikolaj 21 leik í Pepsi-deildinni með Stjörnunni en hann spilaði bæði í hjarta varnarinnar sem og á miðjunni.
Slapp
banner
banner