Ragnar Mar Sigrúnarson hefur fengið félagaskipti yfir í HK. Hann á fjölmarga leiki að baki með Víkingi Ólafsvík.
Um mitt síðasta sumar tók hann við þjálfun 3. deildarliðs Grundarfjarðar auk þess að spila með liðinu,
Um mitt síðasta sumar tók hann við þjálfun 3. deildarliðs Grundarfjarðar auk þess að spila með liðinu,
Ragnar er 27 ára gamall varnarmaður sem er að ganga í raðir HK í annað sinn, hann fór til félagsins sumarið 2010.
Þá náði hann ekki að festa sig í sessi en hann lék alls sex leiki með HK það sumar.
HK féll úr 1. deildinni í fyrra og stefnir á að endurheimta sæti sitt í deildinni á komandi tímabili.



