Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mið 22. febrúar 2012 06:00
Elvar Geir Magnússon
Jónas Þór Næs búinn að semja við danskt félag
Bakvörðurinn færeyski Jónas Þór Næs hefur samið við danskt félag sem leikur í C-deildinni þar í landi. Konan hans hefur verið við nám í Danmörku.

Jónas spilaði með Valsmönnum í Pepsi-deildinni síðasta sumar og var talinn sýna bestu frammistöðuna af Færeyingunum þremur sem léku með liðinu í fyrra.

Félagið sem fær nú að njóta krafta Jónasar heitir Fremad Amager og er frá Kaupmannahöfn en það hefur verið að glíma við mikla fjárhagsörðugleika síðustu ár.

Á sínum tíma lék liðið 20 tímabil í efstu deild Danmerkur.
Slapp
banner
banner
banner