Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 22. febrúar 2012 06:00
Magnús Már Einarsson
Markmannsskóli með Gunnleifi Gunnleifs og Gumma Hreiðars.
Í mars mánuði stendur Knattspyrnuakademía Íslands fyrir markmannsskóla í Kórnum, stærstu og flottustu knatthöll landsins. Um er að ræða þriggja vikna námskeið sem hefst 5. mars. Námskeið Knattspyrnuakademíunnar hafa verið gífurlega vinsæl í gegnum tíðina og færri komist að en viljað.

Markmannsskóli akademíunnar verður enn glæsilegri núna en áður, þar sem landsliðs markmannsþjálfarinn Guðmundur Hreiðarsson og landsliðsmarkmaðurinn Gunnleifur Gunnleifsson munu sjá saman um þjálfunina. Æfð verða helstu tækniatriði sem markmenn þurfa að hafa í huga.

Námskeiðið er bæði fyrir stráka og stelpur sem fædd eru 1998 – 2003. Um er að ræða kjörið tækifæri fyrir efnilega markmenn sem vilja bæta sinn leik og ná langt. Verður hópnum skipt bæði eftir aldri og getu til að tryggja að allir fái sem mest út úr námskeiðinu.

Námskeiðið hefjast mánudaginn 5. mars og standa til 22. mars. Fara æfingarnar fram á mánudags-, þriðjudags- og fimmtudagsmorgnum kl: 06.20 – 07:20.

Þátttökugjald á námskeiðin er 14.900 kr. og er innifalið í því morgunhressing.

Allir markmenn sem taka þátt á námskeiðinu fá 25% afslátt af Stanno markmannsvörum hjá Jóa Útherja, Ármúla 36.

Skráning fer fram á netfanginu: [email protected]

Hægt er að finna allar nánari upplýsingar um námskeiðið á www.knattspyrnuakademian.is
Slapp
banner
banner
banner