Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mið 22. febrúar 2012 08:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Xherdan Shaqiri hringdi í Jupp Heynckes fyrir leikinn í kvöld
Xherdan Shaqiri, leikmaður FC Basel, segist hafa hringt í Jupp Heynckes, þjálfara Bayern München, en liðin eigast við í Meistaradeildinni í kvöld.

Shaqiri var á dögunum seldur til Bayern og mun leika þar á næsta tímabili en þangað til verður hann áfram í herbúðum Basel.

Það verður því athyglisvert að fylgjast með Shaqiri í leiknum sem mun eflaust leggja allt í sölurnar gegn sínum verðandi liðsfélögum.

,,Bayern er sigurstranglegra, þeir koma hingað til þess að vinna. Bayern er og verður besta liðið í Þýskalandi,” sagði Shaqiri.

,,Ég hringdi persónulega í Jupp Heynckes til að spyrja hann hvort hann yrði mér reiður ef ég myndi skora gegn Bayern.”

,,Hann hló bara og sagði síðan að hann myndi finna einhver ráð gegn mér. Þetta var ánægjulegt samtal.”
Slapp
banner
banner