Íslandsmeistarar Stjörnunnar munu í næsta mánuði fara til Svíþjóðar og leika þar tvo æfingaleiki, þar á meðal við lið Kristianstad sem Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar.
Þetta staðfesti Þorlákur Árnason þjálfari Stjörnunar í viðtali við Fótbolta.net í gærkvöldi og sagði ferðina hluta af undirbúningi liðsins fyrir komandi leiktíð þar sem Stjarnan leikur í Meistaradeild kvenna í fyrsta sinn.

,,Við gistum í Kristianstad hjá Elísabetu og ætlum að spila tvo leiki. Við lið sem er að koma upp í úrvalsdeildina og svo Kristianstad," sagði Þorlákur við Fótbolta.net í gærkvöldi en markadrottning síðasta árs, Ashley Bares mun koma til liðs við Stjörnuna í Svíþjóð og er þá alkomin til félagsins að nýju og Inga Birna Friðjónsdóttir sem spilar í Svíþjóð í vetur kemur líka þangað.
,,Við fáum alla leikmennina með," sagði Þorlákur. ,,Við ætlum bæði að hafa gaman og spila tvo leiki við sterkari lið en við eigum að vera."
,,Ég er aðallega að hugsa þannig og fá að spila við erlend lið því við förum í Meistaradeildina í haust. Það er hugsunin á bakvið það."