Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 22. febrúar 2012 16:30
Elvar Geir Magnússon
Heimild: BBC 
Dalglish: Skiptir stuðningsmenn miklu máli
Eftir sex titlalaus ár hjá Liverpool segir knattspyrnustjórinn Kenny Dalglish að úrslitaleikur enska deildabikarsins á sunnudag skipti félagið miklu máli. Liðið mætir Aroni Einari Gunnarssyni og félögum í Cardiff.

„Leikurinn skiptir mig miklu máli en mikilvægast er að hann skiptir fólkið miklu máli sem hefur beðið í einhver ár eftir að sjá liðið á Wembley. Þetta eru verðlaun fyrir tryggðina og stuðninginn sem það hefur sýnt," segir Dalglish.

Hann hefur aldrei unnið deildabikarinn sem stjóri.

„Við höfum tekið þátt í þessu móti af virðingu. Við erum þakklátir öllum, eigendum og stuðningsmönnum sem hafa staðið með okkur."

„Við komumst áfram í FA-bikarnum um síðustu helgi og erum á leið í úrslitaleik enska deildabikarsins ásamt því að vera fjórum stigum frá fjórða sæti í deildinni. Þetta eru framfarir frá því í fyrra," segir Dalglish.
Slapp
banner