Heimild: Football Italia
Það er stórleikur í ítalska boltanum á laugardaginn þegar tvö efstu liðin, AC Milan og Juventus, mætast á San Siro. Thiago Silva, varnarmaður Milan, segist ekki hafa búist við liði Juventus svona öflugu á tímabilinu.
„Í hreinskilni sagt þá bjóst ég ekki við liði Juventus svona sterku. Þeir eru að spila mjög vel en við getum unnið þá. Þeir eru með mikla hæfileika í liði sínu og öflugan þjálfara í Antonio Conte," segir Silva.
Milan er stigi á undan Juventus sem á leik inni. Þessi tvö hafa þegar mæst tvisvar á tímabilinu, Juventus vann deildarleikinn 2-0 á heimavelli og 2-1 í ítalska bikarnum.
„Við þurfum að fara yfir þau mistök sem við höfum gert gegn þeim. Við höfum gert of mörg gegn Juventus sem er hættulegt liða að mæta því þeir geta refsað fyrir mistök. Þeir hafa mikinn hraða, öflugar skyndisóknir og einbeitingu."
Lykillinn fyrir leikmenn AC Milan gæti verið sá að stöðva fyrrum samherja sinn, Andrea Pirlo.
„Við þurfum að hafa auga með öllum, ekki bara honum. En það er vissulega rétt að Andrea er maðurinn sem spilið fer í gegnum," segir miðvörðurinn Silva.

