Brian McDermott hefur skrifað undir nýjan samning sem knattspyrnustjóri Reading. Samningurinn gildir til 2015 en enska úrvalsdeildarfélagið Wolves sýndi áhuga á að fá McDermott til starfa.
Reading er í fjórða sæti Championship-deildarinnar en það sæti gefur þátttökurétt í umspili um úrvalsdeildarsæti.
Reading er í fjórða sæti Championship-deildarinnar en það sæti gefur þátttökurétt í umspili um úrvalsdeildarsæti.
„Ég er alveg í skýjunum með að Brian hefur skrifað undir nýjan samning, þetta er mikilvægur dagur fyrir félagið," segir stjórnarformaðurinn Sir John Madejski.
„Hann er í miklum metum hjá starfsfólki Reading, leikmönnum og að sjálfsögðu stuðningsmönnum."
„Liðið er að gera góða hluti og það eru spennandi tímar framundan."



