Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 22. febrúar 2012 18:00
Elvar Geir Magnússon
FIFA vill líka handabönd eftir leiki
Nefnd á vegum FIFA vill að leikmenn takist í hendur í miðjuhringnum eftir leiki. Franz Beckenbauer er formaður nefndarinnar sem ætlað er að auka íþróttamannslega framkomu og ímynd íþróttarinnar.

Nefndin skoðaði atburði eins og til dæmis þegar Luis Suarez neitaði að taka í höndina á Patrice Evra.

„Mér finnst að liðin eigi að takast í hendur og labba saman inn til búningsklefa, það eigi að yfirgefa völlinn með sama hætti og farið var inn á hann," segir Beckenbauer.

„Þegar ég sá Suarez neita að taka í höndina á Evra hugsaði ég strax að það þarf að koma í veg fyrir svona uppákomur."
Slapp
banner