Heimild: Telegraph
Sir Alex Ferguson gagnrýndi nýlega umboðsmann hins átján ára gamla Paul Pogba og bað Pogba um að líta í kringum sig og sjá hvað hann gæti afrekað hjá Manchester United.
Pogba er sagður óviss um hvort hann vilji vera áfram hjá United. Talið er að Mílanó liðin tvö hafi áhuga á honum, auk Arsenal og Manchester City, en samningur hans rennur út í sumar.
Pogba er sagður óviss um hvort hann vilji vera áfram hjá United. Talið er að Mílanó liðin tvö hafi áhuga á honum, auk Arsenal og Manchester City, en samningur hans rennur út í sumar.
Ferguson vonast til að Rio Ferdinand, varnarmaðurinn reyndi, geti haft einhver áhrif á Pogba með því að tala við hann.
,,Rio er vinsæll hjá klúbbnum og hann passar vel í hópinn. Hann er einnig góður við ungu leikmennina."
,,Eins og er, þá er hann að vinna að með stráknum (Pogba) og tala við hann. Þessi ungi strákur er óviss, en Rio er í miklum metum hjá honum."
Ferguson er sagður ætla að gefa Pogba sitt fyrsta tækifæri í byrjunarliðinu annað kvöld þegar United mætir Ajax í síðari leik liðanna í Evrópudeildinni.


