Góð innkoma hjá David Pizarro
Manchester City 4 - 0 Porto (Samanlagt: 6-1)
1-0 Sergio Aguero ('1 )
2-0 Edin Dzeko ('76 )
3-0 David Silva ('84 )
4-0 David Pizarro ('86 )
Rautt spjald: Rolando, Porto ('77)
1-0 Sergio Aguero ('1 )
2-0 Edin Dzeko ('76 )
3-0 David Silva ('84 )
4-0 David Pizarro ('86 )
Rautt spjald: Rolando, Porto ('77)
Það tók Manchester City aðeins nítján sekúndur að komast yfir gegn Porto í síðari leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Oscar Otamendi tapaði boltanum og Sergio Aguero náði svo að skora eftir sendingu Yaya Toure.
City vann leikinn í Portúgal 2-1 og var því komið í mjög vænlega stöðu. Fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleiknum þó Aguero hafi komist nálægt því að bæta við marki þegar hann átti skot í tréverkið.
Þegar um stundarfjórðungur var til leiksloka bætti Edin Dzeko við marki þegar rangstöðugildra Porto brást. Varnarmaðurinn Rolandi mótmælti harðlega, vildi meina að Dzeko hefði verið rangstæður. Fyrir mótmælin fékk hann sitt annað gula spjald og þar með rautt og Porto lauk leiknum með tíu menn.
David Pizarro, lánsmaður frá Roma, kom inn sem varamaður í leiknum og kom mikið við sögu á lokasprettinum. Hann lagði upp mark fyrir David Silva sem skoraði af stuttu færi og kom City í 3-0. Pizarro skoraði svo sjálfur síðasta mark leiksins á 86. mínútu eftir laglega sókn.
Virkilega góður sigur hjá City sem mun mæta Legia Varsjá eða Sporting Lissabon í 16-liða úrslitum keppninnar.

